Mongol Derby
The longest & toughest horse race in the world
Að láta drauma rætast!
Í ágúst árið 2025 ætla ég að hefja ævintýri lífs míns og taka þátt í Mongol Derby, sem er stærsta, lengsta og erfiðasta hestakappreið í heiminum samkvæmt Guinnes world record.
Frá barnæsku hef ég verið heilluð að hestum og þeir leikið stórt hlutverk í mínu lífi.
Mér líður einsog ég hafi alltaf haft þennan draum en þó ekki í þessa keppni því hún var stofnuð 2010 en þolkappreiðar á hestum hafa heillað mig frá barnæsku, undir áhrifum frá bíómyndum og ímyndunaraflinu var þessi draumur alltaf til staðar en 2014 varð þessi draumur fullmótaður þegar ég fylgdist með Anítu Aradóttur taka þátt í þessari keppni og ég lá yfir fréttum af henni á hverjum degi og skoðaði upplýsingar sem tengdust keppninni og lét mig dreyma um að einn daginn taka þátt en hafði samt aldrei trú á að ég myndi láta verða af því.
í kringum jól 2022 var ég svo að láta mig dreyma og var að skoða keppnina og sá að ég gæti sótt um sem og ég gerði, sótti um þáttöku 2025. Síðar sumar 2024 var ég beðin um að senda myndir og myndbönd af mér á hestbaki og í framhaldinu boðuð í viðtal og eftir það fékk ég að vita að ég hefði verið valin til að taka þátt 2025.
Mongol Derby
Keppnin fer fram í mongolíu þar sem Mongol Derby endurbyggir boðleið Gengish Kahn sem var sú fyrsta í heiminum. Keppendur hafa 10 daga til að komast 1000 kílómetra leið þar sem skipta þarf um hesta á 35 kílómetra fresti, þeir fljótustu klára á áttunda degi en keppandi telst hafa lokið keppni ef hann nær að klára á 10 dögum. Keppnin fer öll fram á mongólskum hestum og eru valdir u.þ.b. 1500 hestar fyrir keppnina. Á hverjum degi fær keppandi þá að meðaltali 3 hesta og hefur þá að lokum fengið tæplega 30 hesta til afnota. Mongólski hesturinn er lítill líkt og íslenski hesturinn en ótrúlega sterkur og fljótur og hefur verið ræktaður í árhundrum með styrk, þol og hraða að leiðarljósi. Mikið er lagt uppúr að gætt sé að heilbrigði hestana en þeir eru skoðaðir fyrir keppni og svo eru þeir skoðaðir eftir að keppt hefur verið á þeim og það eru harðar refsingar ef knapar eru uppvísir af því að ganga fram af hestunum. Knapar þurfa að vera færir um að bjarga sér í öllum veðrum og gista annaðhvort í tjöldum hirðingjanna eða þurfa að hvíla sig yfir nóttina í tilfallandi geitakofa. Þessi langa dagleið gerir það að verkum að flestir knaparnir eru á baki í 12 til 14 tíma á dag og verður það gífurlega mikið líkamlegt álag.
Hver er ég
Bara þessi úr sveitinni.
Um mig
Anna Guðný heiti ég og er fædd og uppalin á Eyjardalsá í Bárðardal, ég hef allt mitt líf verið tengd náttúrunni og dýrunum. Ég hef verið áhugasöm um hesta síðan ég man eftir mér og alltaf verið viss um að ég vildi hafa hesta í lífi mínu. Ég fór í bændaskólann á Hvanneyri haust 2011 og útskrifaðist vor 2013 og tók þá alla áfanga sem stóðu búfræðingum til boða, fór í gegnum fyrsta árið á Hólum og lauk líka náminu reiðmaðurinn vor 2023. ég hef líka unnið við tamningar, unnið sem leiðsögumaður í hestaleigu og hestaferðum og núna síðan sumar 2018 rekið mína eigin hestaleigu og svo boðið upp á reiðnámskeið fyrir börn. Það má því segja að ég hafi séð til þess að hestar séu órjúfandi hluti af lífi mínu.
Stuðningur óskast
Ég er að setja upp stuningssíðu á Karolínafund sem ég er að vinna í að koma í loftið.