Hópurinn sem var á námskeiði í lok júní 2020 í reiðtúr meðfram Skjálfandafljóti

Reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni.

Námskeið sumarið 2022

Stefnt er á að halda tvær hestasumarbúðir fyrir 8-13 ára í júní 2022.

Námskeiðsgjald er 70.000k

Sumar 2022:

  • 13-17. júní - Hestasumarbúðir fyrir 8-13 ára

  • 20-24. júní - Hestasumarbúðir fyrir 8-13 ára

    Námskeiðin eru háð því að lágmarks skráning náist, ef lítil skráning er gætu bæði námskeiðin verið sameinuð á seinni vikuna.

Hér að neðan má finna nánari upplýsingar um námskeiðið.

Námskeiðin eru haldin á Sandhaugum í Bárðardal en þar er frábær aðstaða fyrir reiðkennslu, vel útbúið hesthús með áfastri reiðskemmu, nýtt reiðgerði til æfinga og frábærir náttúruslóðar eru í kringum bæinn.

Reiðkennarar eru Anna Guðný Baldursdóttir og Malin Ingvarsson.

13-17. júní og 20-24. júní - Hestasumabúðir fyrir 8-13 ára

5 daga reiðnámskeið fyrir börn á aldrinum 8-13 ára með reiðkennslu og skemmtun frá morgni til kvölds. Reiðkennsla fer fram í gerði og í náttúrunni, reiðtúrar og æfingar sem bæta ásetu og stjórnun.

Innifalið er fæði, gisting, reiðkennsla, reiðtygi og hjálmar. Hægt er að koma með eiginn hest eða fá hest til afnotun

verð: 70.000kr - 5% systkinaafsláttur

Greiða þarf staðfestingargjald kr 15.000 til að tryggja sætið, greiðsluupplýsingar verða sendar út þegar nær dregur.

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband í tölvupósti : anna@eyjardalsa.is

eða í síma 6937757 (Anna Guðný) eða 8521018 (Malin)